#vikasex
Dagana 3.-7.febrúar verður #vikasex haldin hátíðleg! Þessi vika er sjötta vika ársins og mun hún verða fest í sessi sem árleg vika kynheilbrigðis. Þetta árið er þemað tilfinningar og samskipti.
Við í félagsmiðstöðvum Tjarnarinnar tökum að sjálfsögðu þátt í þessari frábæru viku. T.d. má nefna að í félagsmiðstöðinni 105 í Háteigsskóla verður kynfræðsla frá Ástráði – kynfræðslufélagi læknanema. Þau verða með til sýnis 3D sníp til að skoða og verða með gefins smokka. Í félagsmiðstöðinni Gleðibankanum í Hlíðaskóla mun femínistafélagið Vigdís sýna mynd, smokkar verða gefins, þau munu fræða sig um snípinn og skoða 3D útgáfuna af honum, þáttamaraþon á dagopnun og munu deila kynfræðsluefni á samfélagsmiðlum félagsmiðstöðvarinnar. Einnig verður sérstakur viðburður tengdur kynfræðslu. Félagsmiðstöðin 100&1 í Austurbæjarskóla verður með leirkvöld þar sem leiruð verða kynfæri, Sex Education þáttamaraþon og leikjakvöld þar sem verður farið í umræðuleiki með áherslu á tilfinningar, samskipti og kynheilbrigði. Hinsegin félagsmiðstöð Tjarnarinnar og samtakanna 78 munu fá Hinseginleikann í heimsókn. Þær María og Ingileif munu snerta á umræðum um samskipti og tilfinningar hinseginleikans í allri sinni dýrð. Svo verður félagsmiðstöðin Frosti í Hagaskóla með trúnó og te ásamt því að vera með smokka gefins og þau munu skoða 3D snípinn. Þau munu svo deila með unglingunum kynfræðsluefni í gegnum samfélagsmiðla og fá Indíönu Rós kynfræðing í heimsókn til sín með kynfræðslu seinna í mánuðinum. Allar félagsmiðstöðvarnar hafa hengt upp veggspjöld, sem sjá má hér efst í fréttinni, til að kveikja óformlegar umræður á opnunum félagsmiðstöðvanna um samskipti og tilfinningar.
Kolbrún Hrund verkefnastýra Jafnréttisskóla Reykjavíkur vann í samvinnu við Ungrúv fimm fræðslumola myndbönd sem hugsuð eru fyrir börn frá ca. 11-12 ára og mun eitt örstutt myndband birtast á hverjum degi vikunnar. Það fyrsta fjallar um sjálfsfróun og leit dagsins ljós í dag og mælum við eindregið með að sem flestir kíki á það http://ungruv.spilari.ruv.is/spila/vika-sex/29906/8t6ip1. Svo mun á næstu dögum birtast myndbrot um smokkinn, snípinn, samskipti á netinu og samskipti í kynlífi og bíðum við spennt eftir því að sjá þau.
Við í Tjörninni hlökkum til að taka þátt í þessu magnaða verkefni og hjálpa til við að stuðla að kynheilbrigði unglinga!