Sumarstarf 2021// Summer Programmes 2021

 í flokknum: Birta á forsíðu, Draumaland, Eldflaugin, Frístundaheimili (6-9ára), Frostheimar, Halastjarnan, Hofið, Selið, Skýjaborgir, Undraland

English Polski Tagalog

Gleðilegt sumar kæru foreldrar!

Upplýsingar um sumarstarf og námskeið fyrir börn og unglinga
Í sumar verður fjölbreytt framboð af afþreyingu og fræðslu fyrir börn og unglinga í Reykjavík. Finna
má upplýsingar um sumarstarfið á frístundavefnum
, s.s. um starf
frístundamiðstöðva, siglinganámskeið, sumarbúðir, íþróttanámskeið, reiðnámskeið og margt fleira
sem í boði er.

Skráning
Skráning í sumarstarf frístundaheimila (sumarfrístund), sértækt félagsmiðstöðvastarf,
siglinganámskeið í Siglunesi og á dýranámskeið í Húsdýragarðinum hefst þriðjudaginn
27. apríl kl.
10:00
en skráning í sumarsmiðjur fyrir börn sem eru að ljúka 5.-7. bekk hefst þriðjudaginn 11. maí
kl. 10:00.

Skráning í sumarstarf á vegum Reykjavíkurborgar fer fram á vefnum. Athugið
að innskráning er á island.is þar sem hægt er að nota Íslykil eða Rafræn skilríki í síma.


Skráning í sumarstarf frístundaheimilanna, sértækt félagsmiðstöðvastarf og siglinganámskeið þarf að
fara fram fyrir kl. 12:00 á föstudögum eigi barn að byrja næsta mánudag á eftir. Skráning á
dýranámskeið þarf að fara fram á miðvikudegi í vikunni áður en námskeið hefst. Foreldrum er bent á
að skrá börn sín tímanlega þar sem námskeiðin geta verið fljót að fyllast.


Ef foreldrar eru af erlendum uppruna og eiga lögheimili í Reykjavík (annað foreldri eða báðir) og
barnið hefur búið á Íslandi skemur en tvö ár, eru þrjár vikur án endurgjalds í sumarfrístund/sértækum
félagsmiðstöðvum/sumarsmiðjum gegn umsókn þar um. Sótt er um skriflega til viðkomandi
frístundamiðstöðvar. Þessi afsláttur gildir ekki fyrir börn sem eru með lögheimili erlendis og koma
tímabundið hingað til lands yfir sumarmánuðina.


Athugið að ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir fengið aðstoð við skráningu í
frístundamiðstöðvum borgarinnar (helst fyrir hádegi). Ekki er hægt að skrá börn í sumarstarf
Reykjavíkurborgar í gegnum síma en hægt er að fá leiðbeiningar símleiðis hjá þjónustuveri
Reykjavíkurborgar í síma 411-1111 ef foreldrar eru við nettengda tölvu.


Skráning í sumarstarf hjá öðrum en Reykjavíkurborg fer fram hjá viðkomandi félagi/aðila.


Vinnuskólinn
Vinnuskóli Reykjavíkur býður nemendum úr 8., 9. og 10. bekkjum grunnskóla upp á sumarstörf.
Skráning í skólann er hafin og öllum unglingum sem skráðir verða mun bjóðast starf. Foreldrar skrá
sína unglinga á heimasíðu Vinnuskólans
og þar má jafnframt finna nánari
upplýsingar um starfið.


Foreldrar athugið
Vegna Covid-19 faraldursins geta orðið breytingar á sumartilboðum borgarinnar í samræmi við
ráðleggingar almannavarna og sóttvarnarlæknis hverju sinni. Ef til breytinga kemur verða foreldrar
upplýstir við fyrsta tækifæri.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt