100og1 opnar dyrnar á ný!
Við erum himinlifandi að geta fært ykkur gleðifréttir.
100og1 mun opna aftur mánudaginn 4.maí fyrir 10-12 ára starfið og unglingastarfið. Þá munum við fagna vorinu með útleikjum og auðvitað verður margt í boði innanhúss.
Við munum að sjálfsögðu gæta þess að allt sé hreinsað fyrir notkun og gott aðgengi verður að handþvotti og sótthreinsi.
Opnunartímar munu falla aftur í sama horf og fyrir samkomubann. Bæði fyrir 10-12 ára starfið og unglingastarfið.
Við getum ekki sagt það nógu oft hvað við erum spennt að fá krakkana til okkar aftur!
Nýlegar færslur