Ertu snillingur í leit að skemmtilegu hlutastarfi?

 í flokknum: Birta á forsíðu, Draumaland, Eldflaugin, Frístundaheimili (6-9ára), Frostheimar, Halastjarnan, Selið, Skýjaborgir, Undraland

Ertu snillingur í leit að skemmtilegu hlutastarfi? Eða þekkirðu einhvern snilling í atvinnuleit? Ef svo er er enn að pláss fyrir alls konar snillinga í frístundaheimilunum okkar, t.d. í íþróttaálfa, listaspírur, bakstursmeista, ofurföndrara eða snillinga í mannlegum samskiptum, svo eitthvað sé nefnt.

Við erum að leita að metnaðarfullum og hressum einstaklingum til að vinna með okkur og öllum skemmtilegu og frjóu krökkunum og starfsmönnunum í frístundaheimilunum okkar í vetur. Við bjóðum upp á störf almennra frístundaleiðbeinenda og frístundaleiðbeinenda með stuðning þar sem óteljandi tækifæri gefast til að gera vinnudaginn sinn skemmtilegan og gefandi. Starfið er 20-50% hlutastarf eftir hádegi og hentar mjög vel fyrir háskólanema og aðra áhugasama sem hafa náð 20 ára aldri.

Helstu verkefni og ábyrgð
* Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
* Leiðbeina börnum í leik og starfi.
* Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
* Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla

Hæfniskröfur
* Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
* Áhugi á að vinna með börnum.
* Frumkvæði og sjálfstæði.
* Færni í samskiptum.
* Geta til að starfa bæði sjálfstætt og í hópi.

Við bíðum spennt eftir að þú sækir um vinnu hjá okkur með því að fylla út atvinnuumsókn á vefnum, sjá http://reykjavik.is/laus-storf

Hlökkum til að heyra frá þér og fá þig í liðið okkar!

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt