Úrslit í Frostheimar got talent

 í flokknum: Birta á forsíðu, Frostheimar

Undanfarnar vikur hafa Frostheimabúar æft fyrir hæfileikakeppnina Frostheimar got talent. Dóra J. var börnunum til halds og trausts á meðan á æfingum stóð og svo fóru fram tvær undankeppnir hér í Frostheimum þar sem fimm atriði komust áfram í úrslitin.

Úrslitakeppnin fór fram síðastliðinn mánudag í sal Tjarnarinnar en þar kepptu tvö söngatriði, tvö dansatriði og eitt tónlistaratriði. Það var til mikils að vinna en sigurvegari Frostheima got talent fær að velja hvað er í hressingu í Frostheimum einu sinni og að fara í Ísbúð Vesturbæjar með Dóru J. og velja sér ís að eigin vali.

Sirrý Inga bar sigur úr bítum í keppninni með einlægu og flottu söngatriði og óskum við henni til hamingju!

 

 

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt