Hæfileikakeppni Frostheima
Við erum byrjuð að kynna fyrir krökkunum í samveru keppnina. Reglurnar eru að í einu atriði mega vera 1-3 börn og atriði má vera allt að 3 mín. að lengd. Hver þátttakandi má aðeins vera í einu atriði í keppninni.
Við bjóðum þeim að velja að koma og æfa sig og fá ráðleggingar í nokkur skipti. Við stefnum svo á að hafa tvær undankeppnir þar sem tvö atriði úr hvorri keppni komast áfram í úrslitakeppnina. Endilega hvetja krakkana til að æfa sig heima!
Nýlegar færslur