Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki úr nýjum Hverfissjóði Reykjavíkurborgar

 í flokknum: Birta á forsíðu

Styrkumsóknir 2018

Reykjavíkurborg auglýsir  eftir umsóknum um styrki úr nýjum Hverfissjóði Reykjavíkurborgar.

Tilgangur sjóðsins er að styðja við verkefni sem að stuðla að eftirtöldum þáttum í hverfum borgarinnar:

  • Eflingu félagsauðs, samstöðu og samvinnu íbúa
  • Fegrun hverfa
  • Auknu öryggi
  • Auðgun mannlífs

Sjóðurinn skal styrkja hverfisbundin félagasamtök, íbúa og aðra þá sem vilja leggja sitt af mörkum og standa fyrir hverfistengdum verkefnum og/eða viðburðum með framangreind markmið til hliðsjónar. Hægt er að sækja um styrki til verkefna í einu eða fleiri hverfum. Sjá nánar hvernig hverfin skiptast hér.

Heildarfjárhæð styrkja fyrir árið 2018 er kr. 20.000.000 sem skiptist á milli 10 hverfa borgarinnar.

Ákvörðun um úthlutun úr Hverfissjóði Reykjavíkurborgar er tekin hjá hverfisráðum Reykjavíkurborgar.

Skoðið nánar og sækið um hér.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt