Jólamarkaður 5. desember
Sælir kæru foreldrar og forráðamenn.
Jólamarkaður fjölskyldunnar verður haldinn fimmtudaginn 5. desember milli klukkan 16 og 18 í frístundamiðstöðinni Tjörninni. Um árlegan viðburð er að ræða þar sem börnin í öllum sjö frístundaheimilum Tjarnarinnar selja föndur og ýmislegt jólagóðgæti sem þau hafa búið til, ásamt því sem við erum með „pop up“ kaffihús þar sem fjölskyldum býðst að kaupa heitt kakó og piparkökur og ískalt jólakrap til að koma sér í jólagírinn. Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til SOS barnaþorpa og fer beint í aðstoð við börn sem búa við afar bágar aðstæður.
Nýlegar færslur