Vetrarstarf að hefjast í Frostheimum
Á miðvikudaginn kemur, 23. ágúst, tökum við í Frostheimum á móti fyrstu börnunum sem komin eru með pláss hjá okkur þennan veturinn. Því miður er ekki orðið fullmannað hjá okkur ennþá og því einhver börn á biðlista, en foreldrar fá sendan tölvupóst um leið og barnið þeirra kemst að hjá okkur í Frostheimum.
Hlökkum til að sjá ykkur og eiga góðar stundir í Frostheimum í vetur 🙂
Ef þið hafið einhverjar spurningar eða viljið fá frekari upplýsingar hafið þá samband við okkur, annað hvort í síma 411-5740 eða á frostheimar@reykjavik.is
Nýlegar færslur