Perlað fyrir Kraft í Frostheimum
Á föstudaginn síðasta fengum við í Frostheimum góðan gest í heimsókn þegar Hulda frá Krafti kom til okkar. Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur þess og ein helsta fjáröflunarleið Krafts er sala perluarmbanda með áletruninni “Lífið er núna”. Það var vel sótt meðal Frosheimabúa að perla armböndin og í lok dags voru ríflega 50 armbönd tilbúin sem seld verða í vefverslun Krafts. Frábært að geta lagt málefninu lið!
Nýlegar færslur