Jólamarkaður Tjarnarinnar
Börn hjálpa börnum!
Börnin í frístundaheimilum Tjarnarinnar bjóða foreldrum, forsjáraðilum og öðrum áhugasömum á jólamarkað fjölskyldunnar fimmtudaginn 7. desember milli kl. 16 og 18. Þar bjóða þau til sölu ýmiss konar föndur og varning sem þau hafa búið til til styrkar hjálparstarfi RKÍ við börn í Malaví. Einnig reka starfsmenn kaffihús þar sem fjölskyldur geta sest niður og slakað á í góðum félagsskap. Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið til að koma til okkar á fimmtudaginn og verlsa og við krakkana og eiga notalega stund.
Nýlegar færslur