Sumarstarfið er frábrugðin hinu hefðbundna vetrarstarfi Frostheima, svo það er gott að kynna sér allar upplýsingar vel.
Sumarstarfið er byggt upp á þemavikum. Skráð er í sumarfrístund viku og viku í senn og því hægt að velja vikur sem ná yfir áhugasvið barnsins.
Á sumrin snýst Frostheimar nær eingöngu um útiveru, ævintýri og ferðalög. Við erum alla daga á flandri og því mikilvægt að barnið sé búið undir slíkar ferðir.
Í bæklingnum hér að neðan eru upplýsingar um þemavikur, dagsetningar, gjaldskrá, upplýsingar um skráningu og margt annað sem gott er að vita.
Skráning í sumarstarf 2021 hefst þriðjudaginn 27. apríl kl. 10:00 á http://sumar.fristund.is