Græna Sel
Græna Sel er valsvæði sem er hugsað bæði fyrir orkumikil börn sem og þau sem vilja fá ró og næði. Þau börn sem hafa þörf fyrir hreyfingu og æslagang stendur til boða að fara í boltalandið sem er innst í rýminu. Í boltalandinu er pláss fyrir átta börn í einu og ef eftirspurn er mikil er passað upp á að börnin skiptist á. Hurð skilur að rýmin tvö til þess að takmarka hávaða fram til þeirra sem vilja hafa það rólegt. Frammi er mikið úrval af kubbum og dóti sem vinsælt er að byggja hús úr, fótboltaspil og svo er skákborð í hliðarrými fyrir þá sem hafa áhuga.