Ungmenni funda með borgarstjórn

 í flokknum: 100og1, 105, Birta á forsíðu, Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Frosti, Gleðibankinn, Hinsegin félagsmiðstöð, Hofið

Þriðjudaginn 10. mars fundar Reykjavíkurráð ungmenna með borgarstjórn á opnum fundi í borgarstjórnarsal Ráðhússins. Til umfjöllunar eru tillögur frá ungmennum í Reykjavík um málefni sem á þeim brenna og þeim finnst að betur megi fara í borginni. Fundurinn hefst kl. 15:30. Streymt verður frá fundinum á vefslóðinni http://reykjavik.is/fundirborgarstjornar/borgarstjorn-i-beinni.

Fundur Reykjavíkurráðs ungmenna og borgarstjórnar er orðinn að árvissum viðburði og er þessi fundur sá nítjándi í röðinni. Að þessu sinni liggja átta tillögur fyrir fundinum og snúa þær m.a. að því að kennsla í fjármálalæsi verði skylda í grunnskólum, aðgengi verði að ókeypis tíðarvörum í öllum grunnskólum og félagsmiðstöðvum, að ungmennahúsum í borginni verði fjölgað og að grunnskólakennarar fái aukna fræðslu um loftslagsmál.

Fulltrúar í Reykjavíkurráði ungmenna hafa haft í nógu að snúast í vetur. Ráðið hittist vikulega og skipulagði að auki starfsdag fyrir unglinga í öllum ungmennaráðum Reykjavíkur. Ráðið var einnig í góðu og miklu samstarfi við ungmennaráð skátanna en ráðin undirbjuggu í sameiningu og héldu fjölmennt málþing um málefni ungmennaráða, Ráðabrugg, þar sem ungmenni gátu sótt innblástur fyrir störf sín á komandi starfsári og kynnst starfi annarra ráða. Áhersla var lögð á verkefni sem hafa verið rekin af og fyrir ungmenni og gagnlegar reynslusögur frá hinum ýmsu ungmennaráðum. Reykjavíkurráð ungmenna á einnig fulltrúa í skóla- og frístundaráði og í stjórn Barnamenningarhátíðar.

Reykjavíkurráð ungmenna er samráðsvettvangur sex hverfaráða ungmenna í Reykjavík en hvert hverfaráð tilnefnir sína fulltrúa í Reykjavíkurráðið.

Markmið með starfsemi ungmennaráða í Reykjavík er m.a. að skapa vettvang og leiðir til þess að gera þeim sem eru yngri en 18 ára kleift að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri og þjálfast í lýðræðislegum vinnubrögðum. Í starfi sínu í vetur og síðastliðin ár hafa ungmennaráðin í borginni fjallað um málefni ungs fólks og tekið þátt í ýmsum verkefnum sem fulltrúar ungs fólks í Reykjavík.

Meðfylgjandi er yfirlit yfir tillögurnar sem lagðar verða fyrir borgarstjórn.

Allar nánari upplýsingar veitir Hulda Valdís Valdimarsdóttir verkefnastjóri á fagskrifstofu frístundamála og starfsmaður Reykjavíkurráðs ungmenna, í síma 695-5021

Tillögur Reykjavíkurráðds ungmenna

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt