Tjörnin tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna 2021

 í flokknum: 100og1, 105, Birta á forsíðu, Draumaland, Eldflaugin, Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Frístundaheimili (6-9ára), Frostheimar, Frosti, Gleðibankinn, Halastjarnan, Hinsegin félagsmiðstöð, Hofið, Selið, Skýjaborgir, Undraland
Tjörnin er tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna 2021 fyrir framúrskarnandi menntumbætur, er tilefnd fyrir framsækið og fjölbreytt þróunarstarf, frumkvæði og nýbreytni.
Það er mjög mikill heiður að frístundastarf sé að hljóta þá viðurkenningu að stuðla að menntun barna og unglinga. Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. Samvinna og samstarf þeirra sem að barninu koma skiptir miklu máli.
 Við erum þakklát og stolt fyrir að vera tilnefnd af þessum flotta hópi sérfræðinga í menntamálum sem koma að því að velja.

Markmiðið með starfi frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar er að koma til móts við þarfir ólíkra einstaklinga, stuðla að alhliða þroska þeirra og búa þá undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi sem tekur örum breytingum.

Tjörnin hefur verið framsækin og leitt mörg þróunar- og nýsköpunarverkefni frá því að hún tók til starfa árið 2016 og meðal annars verið leiðandi í lýðræðis og mannréttindavinnu með börnum og unglingum í Reykjavík. Hinsegin félagsmiðstöð Samtakanna 78 og frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar er dæmi um metnaðarfullt verkefni en hún er fyrir börn og unglinga á aldrinum 12-18 ára. Réttindaganga frístundaheimila Tjarnarinnar er farin ár hvert en þá minna börn á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og réttindi barna. Einnig hafa öll frístundaheimili og félagsmiðstöðvar Tjarnarinnar í Vesturbæ hlotið vottun sem réttindafrístundaheimili og félagsmiðstöðvar en þar er vottun frá UNICEF um að unnið sé eftir Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna.

Tjörnin vinnur eftir menntastefnu Reykjavíkurborgar og til þess nýtt stefnumiðuð stjórnun í því skini innleiða alla færniþætti í starfinu. Leitast er við að vinna eftir þeim aðferðum sem kenndar eru við heiltæka nálgun  og samvirkni (e. systematic improvement) og mikil áhersla á samvinnu og samstarf allra í uppeldisumhverfi barnsins. Megináhersla er á að greina og byggja á styrkleikum barna og unglinga. Í starfsáætlun Tjarnarinnar má lesa betur um hvernig unnið er eftir menntastefnu og frístundastefnu Reykjavíkurborgar.

Starf Tjarnarinnar hefur vakið athygli á landsvísu og út fyrir landsteinana.

Nokkur dæmi um þróunarverkefni sem starfsmenn Tjarnarinnar hafa unnið að:

  • Vaxandi valdefling: Efling fagmennsku í frístundastarfi í samstarfi við Háskóla Íslands: Vinnustofur um sjálfseflingu og félagsfærni. Meginmarkmiðið er að finna leiðir í frístundastarfi til að auka vellíðan og farsæld í lífi barna, unglinga og starfsmanna.
  • Hinsegin félagsmiðstöð Tjarnarinnar og Samtakanna 78: Félagsmiðstöðin sinnir öllum þeim unglingum á höfuðborgarsvæðinu sem hafa áhuga á fjölbreytileika.
  • Flotinn, flakkandi félagsmiðstöð: Flotinn er viðbót við almennar félagsmiðstöðvar sem starfa í hverfum borgarinnar á vegum frístundamiðstöðva. Flotinn starfar þvert á borgina og er ekki bundinn við eitt ákveðið hverfi.
  • Treystum böndin: Forvarnarátak: Treystum böndin er samstarf og samtal við foreldra og fræðsla um verndandi þætti í uppeldisumhverfi barna og unglinga. Í tengslum við verkefnið hefur frístundamiðstöðin Tjörnin gefið út handbók fyrir foreldra um foreldrarölt.
Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt