Skemmtileg dagskrá í vetrarfríinu // Fun programme in the winter break
Frístundamiðstöðin Tjörnin stendur fyrir skemmtilegum fjölskylduviðburðum í vetrarleyfi skólanna fimmtudaginn 17.2. Boðið verður upp á bingó í Tjörninni, Frostaskjóli 2 (sama hús og KR) frá kl. 13:30-14:30 en þar verða einnig spil á borðum og kaffi, djús og kleinur í boði til kl. 15:30.
Í Spennistöðinni Barónsstíg 32 (við hliðina á Austurbæjarskóla) verða nokkrar skapandi smiðjur í boði milli kl. 14 og 16 þar sem hægt verður að fara í risaeðlusmiðju, vorföndur og skartgripagerð ásamt því sem hægt að taka þátt í Pool keppni. Kaffi, djús og kleinur í boði meðan húsið er opið. Auk þess er frístundamiðstöðin í samstarfi við Vesturbæjarlaug sem býður frítt í sund milli kl. 14 og 16 en starfsmenn frístundamiðstöðvarinnar bjóða gestum upp á kaffi, djús og kleinur á þeim tíma.
Einnig er skapandi og sniðugum krökkum boðið að taka þátt í rafrænni Legó keppni þar sem þátttakendur byggja draumahúsið sitt með frjálsri aðferð og senda inn mynd af því í s.l. lagi fös. 18.02. á netfangið: vetrarleyfi.tjornin@gmail.com, en verðlaun verða veitt fyrir 1.-3. sæti
Tjörnin Recreation Division will be offering a family programme of activities for the winter break on Thursday the 17th of February. There will be bingo at Tjörnin, Frostaskjól 2 (same house as KR) between13:30-14:30 as well as an open house with board games and refreshments until 15:30.
Spennistöð on Barónstígur 32 (by Austurbæjarskóli) will be open between 14:00 and 16:00 with a Dinosaur Workshop, spring crafts, jewellery making and a pool competition. Refreshments available. Free admission will be available at Vesturbæjarlaug between 14:00 and 16:00 and staff from Tjörnin will also offer free refreshments there.
Finally, Tjörnin will also be holding a virtual Lego competition which children can compete in from home and there are prizes for 1st to 3rd place for sending a picture of their dream house to the email: vetrarleyfi.tjornin@gmail.com at the latest on Friday the 18th.