Rafræn 105 27. – 29. apríl
Þá er síðasta vikan í apríl runninn og margt skemmtilegt í þessari góðu en stuttu viku. Í dag, mánudag kl. 17:30 verðum við með dagskráliðinn “hvert er hljóðið?”, þar sem þátttakendur eiga að giska á mismunandi hljóð á samfélagsmiðlum. Í kvöld verður svo 100ogGYM þar sem boðið verður upp á fjölbreyttar heimaæfingar við allra hæfi. Á morgun þriðjudag verður spurningaleikur með bíómynda- og þáttastefsþema. Á miðvikudaginn verður myndagáta kl. 17:30 og Masterchef: núðluedition kl. 20:00. Á föstudaginn er svo 1. maí dagur verkalýðsins og þar af leiðandi ekki dagskrá í rafrænni 105.
//
The last week of April 2020 is here and today Monday the 27th at 17:30 we are having a quiz were the teenagers have to guess various sounds, at 20:00 the famous 100andGYM will be on schedule for easy home workouts. Tomorrow Tuesday the 28th at 15:00 we are having a short quiz with a movie-and tv show soundtracks. On Wednesday the 29th at 17:30 we are having riddles and in the evening at 20:00 there will be a Masterchef: minute-noodle edition between the staffmembers. Friday the 1st of May is Labour day and therefore there will be no program in 105.