Hausthátíð Tjarnarinnar haldin í Vesturbæjarlaug
Hausthátíð Tjarnarinnar fór fram fimmtudaginn 24. október með pompi og prakt. Frítt var fyrir alla gesti í Vesturbæjarlaugina og var boðið upp á kaffi, djús, kex og kleinur fyrir unga sem aldna. Nóg var um skemmtiatriði í sundlauginni en þar kom fram spunahópurinn Kók og kavíar sem er skipaður Daða og Jökli, nemendum í Hagaskóla og svo sá plötusnúðurinn Ýmir um að spila ljúfa tölvutóna fyrir sundgesti. Einnig var boðið upp á sund zumba og var spurningaleikurinn sívinsæli Synt og svarað á dagskrá. Þrátt fyrir slæmt veðurfar skemmtu sér allir gríðarlega vel og þakka starfsmenn Tjarnarinnar fyrir góða skemmtun.
Nýlegar færslur