Daglegt starf Skýjaborga er uppbyggt á eftirfarandi vegu:

13.40  – Skýjaborgir taka við börnunum af skólanum. Dagurinn byrjar á hressingu, en eftir hana velja börnin sér svæði fyrir daginn og fara með töskurnar sínar í Skýjaborgir.

Eftir að börnin hafa valið sér svæði fara allir í útiveru. Útiveran er mis löng eftir veðri og aðstæðum, en kallað er inn í valið að henni lokinni. Þá safnast börnin saman á þeim svæðum sem þau hafa valið.

16.00 – Ávaxtastund / Val klárast. Eftir frágang fara börn að valtöflu á fyrstu hæð og skipta á viðeigandi svæði. Þau sem völdu innisvæði yfir daginn fara í smá útiveru. Þau börn sem voru úti í valinu mega koma inn á fyrstu hæð og leika þar. Boðið er upp á ávexti bæði inni og úti.

16.30 – Þeim börnum sem eftir eru er frjálst að koma inn á fyrstu hæð. Oftar en ekki er danspartý á þessum tíma dags.

17.00 – Skýjaborgir loka.

 

The daily program at Skýjaborgir is as follows:

13.40 – Children arrive at Skýjaborgir. We all have a snack and choose the area they would like to spend time in that day. The children take their bags over to Skýjaborgir and head outside for playtime. Outdoor playtime varies in length factoring in weather. The kids are called in when their areas of choice open and they gather where they have chosen to spend their day.

16.00 – Fruit snack / play areas close. After clean up the kids go to the sign-out board and move their picture to the appropriate area. The kids who have been playing inside get some fresh air, while the kids who chose to play outside during the day can come to the first floor. Fruit is offered both inside and outside.

16.30 – Everyone is allowed back inside, but only the first floor is used during this time. Most days we end they day with a dance party.

17.00 – Skýjaborgir closes.

 

 

Valsvæði Skýjaborga:

Fyrsta hæð –  1. hæð Skýjaborga og er svo kallað Hjartarými. Þar geyma börnin í 1. bekk fötin sín og er hvert barn með merkt fatahólf. 2. bekkur geymir töskur og föt út í skóla en það fer vonandi að breytast þegar við bætum við hólfum. Í Hjartarými er valtaflan okkar og upplýsingatafla barnanna. Á þessu svæði er alltaf starfmaður sem sér um að merkja börnin út þegar þau eru sótt og aðstoðar foreldra við að finna börnin.

Á fyrstu hæð er bókahornið okkar og er það rólega svæðið okkar, þar er hægt að lesa bók og hjúfra sig upp í sófa. Við bjóðum þeim líka uppá heyrnahlífar ef þau vilja meira næði. Teiknihornið er svo þar við hliðina. Á þessari hæð er líka perlu og plúskubba-svæði en það er einstaklega vinsælt. Stundum þá breytum við teiknihorni í danspartý sem börnin fá aldrei leið á.

 

Önnur hæð – Á annarri hæð fær ímyndunaraflið að ráða för. Rýmið á annarri hæð er tvískipt – annars vegar er dótakrókur, þar sem allskyns leikföng eru geymd fyrir frjálsan leik, og hinsvegar er búninga- og leikhúsrými, þar sem hægt er að fara í ímyndunarleik, klæða sig upp í allskyns múnderingar og setja upp leiksýningar á sviðinu. Einnig er Legohornið okkar að finna á annari hæð þar sem að hámarki 8 börn geta verið í einu. Legoið er mjög vinsæl stöð þar sem hinar ýmsu borgir, fígúrur og heimar verða til.

Kjallari – Í kjallaranum er listasmiðja Skýjaborga. Hér klippum við og límum, málum og perlum. Í boði eru skipulagðar listasmiðjur með fyrirfram ákveðnum markmiðum, en líka frjálsir dagar sem við nýtum í að föndra það sem okkur dettur í hug. Á tyllidögum er svo aldrei að vita nema boðið sé upp á andlitsmálningu.

Útivera – Í vali er í boði að velja útiveru ef veður leyfir. Útivera fer yfirleitt fram á skólalóð Vesturbæjarskóla, en hún er líka nýtt í rassaþotuferðir á veturna, en á vorin og haustin þegar veðrið leikur við okkur er stundum farið í rólóferðir eða göngutúra að tjörninni þar sem afgangar úr hressingu eru nýttir sem andafóður.

Íþróttasalur – Við nýtum íþróttasalinn á hverjum degi. Við erum svo heppin að vera með starfsmann sem er búin að þjálfa fimleika í mörg ár og hefur líka mikinn áhuga á Yoga. Það eru líka íþróttastrákar í vinnu sem finnst fátt eins gaman og að fara í fjöruga leiki í íþróttasal. Í íþróttasalnum er einnig inná milli boðið upp á frjálsan leik. Við nýtum salinn í ýmis partý t.d á öskudag eða halloween eða bara þegar okkur langar að gera gott föstudagspartý!

Tónlistastofa –  Tónlistarklúbbur er vinsæll og fáum við að nota tónlistarstofu Vesturbæjarskóla til þess að skapa allskonar skemmtileg tónlistarverkefni .

Spilaborgir –  Við höfum aðgang að skólastofu út í skóla og er hún notuð fyrir spil og púsl. Á þessu svæði er hámarksfjöldi 12 börn og er því oftast mjög róleg og hugguleg stemming, börnin spila í rólegheitum og oftast er sett góð tónlist.

Matreiðsla – Skýjaborgir hefur aðgang að matreiðslustofunni alla föstudaga. Í matreiðslu er börnunum leiðbeint um hvernig megi baka og elda á einfaldan máta, ásamt hreinlæti og öryggisverkferlum í matargerð.

Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt