Spennistöðin er félags- og menningarmiðstöð íbúa Miðborgarinnar, fjölnotarými til kennslu í Austurbæjarskóla og aðsetur félagsmiðstöðvarinnar 100og1. Spennistöðin stendur á Barónsstíg 32, áföst við Austurbæjarskóla að sunnanverðu. Rekstur Spennistöðvarinnar er í höndum Skóla og frístundasviðs Reykjavíkurborgar en sérstakt húsráð er ráðgefandi um reksturinn og skipuleggur notkun hússins þann tíma sem ekki er nýttur fyrir skólastarf og opnunartíma félagsmiðstöðvar.

Spennistöðin

Bókaðu rými

Vilt þú fá afnot af Spennistöðinni?

Vilt þú fá afnot af Spennistöðinni?

 

Spennistöðin er allt í senn skólahúsnæði, félagsmiðstöð og félagsheimili íbúa í Miðborg.  Húsnæðið nýtist undir kennslu fyrri part dags en undir félagsmiðstöð utan þess tíma. Húsnæðið er laust til notkunar fyrir íbúa og félagasatök til eflingar menningar- og félagsstarfs í miðborginni.

 

Almennar fyrirspurnir sendast á Gissur Ari Kristinsson sem hefur umsjón með bókunum á húsnæðinu eftir að starfi skólans og félagsmiðstöðvar lýkur. Hægt er að hafa samband á email: gissur@rvkfri.is eða Spennistodin@rvkfri.is

 

Foreldrar í Austurbæjarskóla hafa forgang á húsnæðið um helgar. Foreldrar geta nýtt húsnæðið ýmist fyrir bekkjarkvöld, fjáraflanir og m.fl.
Hægt er að leiga Spennistöðina undir afmælisveislur. Leigan á húsnæðinu er 10 þúsund krónur og leigist i fjóra klukkustundir í senn. Fyrirspurnir og bókanir sendist á Gissur, gissur@rvkfri.is.

 

Mjög fjölbreyttir hópar hafa afnot af Spennistöðinni má þar á meðal nefna að Hinsegin félagsmiðstöð hefur afnot af húsinu á þriðjudagskvöldum.

Sagan

Sagan

Loksins félagsmiðstöð !

Aðgerðarhópur var stofnaður í fundarherbergi Austurbæjarskóla í árslok 2009 með það að markmiði að vekja athygli á áratuga aðstöðuleysi skólans og félagsmiðstöðvarinnar. Eldri hugmyndir um nýtingu Vörðuskóla fyrir skóla- og frístundastarf höfðu verið slegnar af og engar nýjar tillögur bárust. Hópurinn ákvað að rifja upp hugmynd um nýtingu spennistöðvarinnar og kynna hugmyndina um uppbyggingu félags- og menningarmiðstöðvar, samnýtingu skóla-, frístundar og íbúa á þessu húsnæði. Ekki átti að fara í “2007” framkvæmd, heldur leyfa húsnæðinu að þróast og mótast af þörfum notenda hússins, byggja það upp í áföngum. Komið yrði á öflugu samstarfi einstaklinga og stofnana um samnýtingu húsnæðis og búnaðar í þágu barna, ungmenna og annarra íbúa hverfisins.

Haldin voru málþing með fyrrverandi og núverandi nemendum, og íbúaþing í Tækniskólanum í samstarfi íbúasamtaka, hverfisráðs og foreldrafélaga leik- og grunnskóla í hverfinu. Fulltrúar foreldra og íbúa sendu ótal erindi og kynntu ráðamönnum málið. Úttekt á húsnæðinu var gerð 2010 og starfshópur Í.T.R. skilaði greinagerð árið 2011. Hugmyndin var valin efst í sínum flokki á samráðsvefnum Betri Reykjavík árið 2012 og var fyrst úhlutað fjármagni á framkvæmdáætlun ársins 2013. Útbúin var skýrsla um spennistöðina þar sem lögð var áhersla á samnýtingu skólans og félagsmiðstöðvar á húsnæðinu ásamt því að þar gæti farið fram starfsemi á vegum íbúa í hverfinu. Farið yrði í lágmarksaðgerðir í fyrsta áfanga og lögð áhersla á fjölnota sal, framkvæmdir við húsnæðið ættu að taka mið af óskum notenda.  

Í lok árs 2013 voru framkvæmdir hins vegar ekki hafnar og fóru nemendur, kennarar, foreldrar, starfsfólk 100og1 og íbúar í mikla kröfugöngu frá Skólavörðuholti og niður í Ráðhús til fylgja málinu eftir. “Þið fáið félagsmiðstöð” sagði þáverandi borgarstjóri, Jón Gnarr og Spennistöðin var formlega opnuð 28. nóvember 2014 við hátíðlega athöfn.

Hvaða hús er þetta eiginlega ?

Spennistöðin er húsnæði sem lengi hafði staðið autt og var áður í eigu Rafmagnsveitu Reykjavíkur, síðar Orkuveitu Reykjavíkur. Spennistöðin var byggð árið 1949 og eftir að ný spennistöð var reist við hlið Heilsuverndarstöðvarinnar var húsnæðið um árabil notað sem varahlutalager Orkuveitu Reykjavíkur. Sú notkun sem hafði í för með sér talsverða umferð þungavinnutækja sem féll mjög illla að staðsetningu hússins við skólann. Reykjavíkurborg keypti síðan spennistöðina af Orkuveitu Reykjavíkur.

Hvatningarverðlaun til Spennistöðvarinnar

Nemendafélag og foreldrafélag Austurbæjarskóla hlutu þann 20. maí 2015 hvatningarverðlaun Heimilis og skóla fyrir baráttu sína fyrir bættum aðstæðum nemenda, barna og ungmenna í íbúahverfinu Miðborg. Fulltrúar nemenda, foreldra og skólans mættu saman á hátíðlega stund í Þjóðmenningarhúsi. Félögin fengu fallegan blómvönd sem starfsmenn skólans fengu að njóta, inneignarnótu í IKEA sem nemendafélagið fékk til ráðstöfunar, glerstyttu og viðurkenningarskjal. (hér mætti setja inn mynd af verðlaunaafhendingunni)

Húsráð

Húsráð

Húsráðið er skipað tíu manns fyrir skólaárið 2019-2020.  Hlutverk húsfélagsins er að vera ráðgefandi við frístundamiðstöðina Tjörnina vegna nýtinga húsnæðis og starfsemi Spennistöðvarinnar utan skóla- og frístundatíma. 

Húsráðið skipa:

  • Friðmey Jónsdóttir (fulltrúi félagsmiðstöðvar 100og1)
  • Lára Guðrún Agnarsdóttir  (fulltrúi Austurbæjarskóla).
  • Oddný Sturludóttir (fulltrúi foreldrafélags Austurbæjarskóla)
  • Guðrún Kaldal / Héðinn Sveinbjörnsson (fulltrúi Frístundamiðstöðin Tjörnin)
  • Kristófer Nökkvi  Sigurðsson (fulltrúi frístundaheimilisins Draumalands)
  • Benóný Ægisson (fulltrúi íbúasamtaka miðborgar)

Leigusamningur

vegna afnota utanaðkomandi aðila

Hlaða skjali

Gátlisti

varðandi frágang í Spennistöðinni

Hlaða skjali

Húsreglur

Spennistöðvarinnar

Hlaða skjali
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt