Hofið er félagsmiðstöð fyrir börn og unglinga í 5. – 10. bekk með fötlun sem búa vestan Elliðaáa í Reykjavík.
Starfsemi Hofsins fer fram frá 13:30- 17:00. Auk þess er boðið upp á langa daga á skipulagsdögum grunnskóla og sumarnámskeið.
Sótt er um dvöl í félagsmiðstöðina Hofið á Rafrænni Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Bjarnadóttir forstöðumaður í síma 664-7774 eða á netfanginu: ragnheidur.bjarnadottir1@rvkfri.is eða Agnes Ársælsdóttir, aðstoðarforstöðumaður á netfanginu agnes.arsaelsdottir@rvkfri.is eða í síma 664-7663
Í Hofinu leggjum við áherslu á skipulagt starf í bland við frjálsan leik. Við leggjum áherslu á barna og unglinga lýðræði og höldum Hofsráðsfundi reglulega. Börnin og unglingarnir hafa þannig áhrif á það sem gert er í skipulögðu starfi í félagsmiðstöðinni. Aldursbil í Hofinu er breytt og tekið er tillits til þess í starfinu. Til dæmis eru sérstakir unglingaklúbbar.
Aðgerðaráætlun Hofsins 2020 – 2021
Sértæka Félagsmiðstöðin Hofið tilheyrir frístundamiðstöðinni Tjörninni sem heyrir undir skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar. Hofið þjónustar börn í 5. – 10. bekk sem ganga í almenna grunnskóla vestan Elliðaáa í Reykjavík og er staðsett á Þorragötu 3.
Forstöðukona er Steinunni Sif Sverrisdóttir og aðstoðarforstöðukonur eru Ragnheiður Bjarnadóttir og Klara Dögg Baldvinsdóttir. Í Hofinu starfa 16 starfsmenn með fjölbreyttan bakgrunn, menntun og reynslu.
Markmið Hofsins er að bjóða uppá fjölbreytt tómstundarstarf þegar skóladegi þeirra lýkur.
Boðið er uppá einstaklingsmiðaða þjónustu með mikla áherslu á virka þátttöku, félagsfærni, sjálfstæði, lýðræði, sköpun og virðingu. leitast er við að veita bæði börnum og foreldrum þeirra góða og persónulega þjónustu sem byggist á góðum samskiptum og trausti.
Starfsáætlanir frístundamiðstöðvanna 2020 – 2021 eru unnar út frá Menntastefnu Reykjavíkurborgar https://reykjavik.is/sites/default/files/menntastefna_rvk_20x20-lores22.02.pdf og Stefnu um frístundaþjónustu í Reykjavík til 2025 https://reykjavik.is/sites/default/files/ymis_skjol/skjol_utgefid_efni/sfs_fristundastefna_2017_web.pdf.
Einnig er tekið mið af lögum og reglugerðum, upplýsingum um þátttöku í starfinu, niðurstöðum kannana um starfið og rannsóknum á stöðu barna og unglinga í hverfinu.
Starfsáætlunin tekur gildi 24. ágúst 2020 og gildir til 10.06.2021
Félagsmiðstöðin Hofið fylgir starfsáætlun Tjarnarinnar sem hægt er að nálgast á heimasíðu Tjarnarinnar www.tjornin.is. Þar má finna nánari upplýsingar um markmið og leiðir í starfinu.
Aðgeðaráætlun hverrar starfseiningar er settu upp í svipuðu formi og skóladagatal til að foreldrar og forráðamenn geti fylgst með dagskránni hverju sinni.
Framtíðarsýn
Áhersluþættir í starfi
Félagsfærni:
Í daglegu starfi í Hofinu er unnið að því að efla félagsfærni hvers og eins. Boðið er upp á fjölbreytt klúbbastarf þar sem að tækifæri er til þess að æfa sig í Félagsfærni. Það fer fram í gegnum spjall við jafnaldra og starfsfólk auk þess sem notaðar eru félagsfærni sögur til þess að styðja en frekar við félagsfærni þegar við á. Dæmi um hvernig félagsfærni er æfð í daglegur starfi í Hofinu er í gengum borðspil og tölvuleiki. Þar er tækifæri fyrir þau til þess að æfa sig í að skiptast á samgleðjast öðrum og vinna að sameiginlegum markmiðum.
Sjálfsefling:
Börnum og unglingum er markvisst kennt að hafa trú á sjálfum sér og finna sýna styrkleika í gegnum formlegt og óformlegt starf í Hofinu. Starfsfólk hefur það að leiðarljósi í daglegum störfum sínum að valdefla börnin og unglingana með því að hvetja þau til þess að hafa áhrif á starfið í Hofinu.
Læsi: Lögð verður áhersla á að börnin og unglingarnir þekki réttindi sín sem börn. Þau hafi þekkingu á hver réttindin eru og kunni að afla sér upplýsinga um þau. Auk veður boðið uppá sögu klúbb þar sem að saga er lesin fyrir þá sem vilja og gott aðgengi er að bókum í Hofinu.
Sköpun:
Sköpun fer fram í hinum ýmsu klúbbum í Hofinu. Til dæmis föndurklúbbum þar sem er málað, teiknað, perlað, smíðað, bakað, eldað og gerðar tilraunir.
Heilbrigði og lífstíl og vellíðan:
Boðið er upp á holla síðdegishressingu og börnin og unglingarnir eru hvattir til þess að taka þátt í klúbbastarfi sem felur í sér hreyfingu og eða útivist. Til dæmis er Just Dance vinsælt. Farið er út í bolta leiki í fjöruferðir, á leikvelli og í gönguferðir svo að eitthvað sé nefnt.
Unglinga og barna lýðræði
Í Hofinu er lögð mikil áherslu á lýðræði og þátttöku. Í fyrstu viku hvers mánaðar er dagskrágerðar vika þar sem þátttakendum er boðið að koma með hugmynd af klúbbum, undirbúa þá og ákveða dagsetningu. Þannig hafa börnin bein áhrif á starfið. Einnig erum við með hugmyndakassa sem alltaf er hægt að setja hugmynd í. Hofið hefur tekið þátt í ungmennaráðum og gerir það þegar ráðin eru virk.
Gæði og fagmennska
Ágúst
September
Nýtt upphaf, tengslamyndun og vinátta
Október
Hrekkjavökuþema – sköpun og ímyndunarafl
22.október: Fjölskylduhátíð í haustfrí grunnskólanna
Nóvember
Barnasáttmálinn – sérstök áhersla á samvinnu, lýðræði og réttindi.
Desember
Hátíðarbragur, virðing og umhyggja
Janúar
Sjálsást, leikur og skemmtun
Febrúar
útivert og vetraíþróttir
Mars
Hamingju Hof, æfa jákvæða hugsun og efling áhugamála.
Apríl
Læsi texti, myndir, hljóð, tilfinningar
Maí
Sjálsefling, styrkleikar og vellíðan
8.-9.maí: Rafíþróttamót Samfés.
10. maí: Hofið verður lokað vegna starfsdags
Júní
útivera og leikir
Hofsráð er vettvangur barnanna til að ræða saman um starfið og koma sínum hugmyndum á framfæri og þannig áhrif á starfið.
Eitt af markmiðum ráðsins er valdefla börnin með þeim hætti að þau fá æfingu í því að finna saman í hóp, taka tillit til skoðanir annarra og fái tækifæri til að tjá skoðanir sínar.
Hofsráðið fundar einu sinni í mánuði og ræðir um klúbbastarf og viðburði sem framundan eru eins og til dæmis árshátíð, unglingakvöld, spilaklúbbur og böll svo eitthvað sé nefnt.