Markmið félagsmiðstöðvarinnar 100og1 er að
bjóða upp á fjölbreytt, skapandi og skemmtilegt
starf fyrir börn og unglinga í miðbænum. Í því
felst að skapa jákvætt andrúmsloft og umhverfi í
frístundastarfi þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni
hjá börnum og unglingum með áherslu á
samskipta- og félagsfærni, virkni og þátttöku
ásamt styrkingu sjálfsmyndar.