Vetrarstarf Skýjaborga hefst á ný

 í flokknum: Skýjaborgir

Í þessari viku lýkur sumarstarfi Skýjaborga 2018. Um leið og við þökkum kærlega fyrir frábært sumar og kveðjum verðandi 3. bekkinn viljum við bjóða nýjan 1. bekk hjartanlega velkominn í Skýjaborgir.

Síðasti dagur sumarstarfs er í dag, mánudaginn 20. ágúst. Lokað er í Skýjaborgum vegna undirbúningsdaga þriðjudag og miðvikudag 21. og 22. ágúst.

Fyrsti dagur vetrarstarfs hjá 2. bekk er svo á fimmtudaginn 23. ágúst. Að lokum hlökkum við til að taka á móti nýjum 1. bekk föstudaginn 24. ágúst.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt