Ungmenni funda með borgarstjórn

 í flokknum: Birta á forsíðu

Nú stendur yfir fundur fulltrúa úr Reykjavíkurráði ungmenna með borgarstjórn í borgarstjórnarsal Ráðhússins. Til umfjöllunar eru tillögur frá ungmennum í Reykjavík um málefni sem á þeim brenna og þeim finnst að betur megi fara í borginni. Fundurinn hófst kl. 16.15 og vegna gildandi takmarkana á samkomum vegna farsóttar er einungis hægt að fylgjast með fundinum í gegnum streymi að þessu sinni. Streymt er frá fundinum á vefslóðinni http://reykjavik.is/fundirborgarstjor…/borgarstjorn-i-beinni.

Fundur Reykjavíkurráðs ungmenna og borgarstjórnar er orðinn að árvissum viðburði og er þessi fundur sá nítjándi í röðinni. Að þessu sinni liggja átta tillögur fyrir fundinum og snúa þær m.a. að því að kennsla í fjármálalæsi verði skylda í grunnskólum, aðgengi verði að ókeypis tíðarvörum í öllum grunnskólum og félagsmiðstöðvum, að ungmennahúsum í borginni verði fjölgað og að grunnskólakennarar fái aukna fræðslu um loftslagsmál. (Að ofan er hægt að lesa tillögur fundarins).

Fulltrúar í Reykjavíkurráði ungmenna hafa haft í nógu að snúast í vetur. Ráðið hittist vikulega og skipulagði að auki starfsdag fyrir unglinga í öllum ungmennaráðum Reykjavíkur. Ráðið var í góðu og miklu samstarfi við ungmennaráð skátanna en ráðin undirbjuggu í sameiningu og héldu fjölmennt málþing um málefni ungmennaráða, Ráðabrugg, þar sem ungmenni gátu sótt innblástur fyrir störf sín á komandi starfsári og kynnst starfi annarra ráða. Áhersla var lögð á verkefni sem hafa verið rekin af og fyrir ungmenni og gagnlegar reynslusögur frá hinum ýmsu ungmennaráðum. Reykjavíkurráð ungmenna á einnig fulltrúa í skóla- og frístundaráði og í stjórn Barnamenningarhátíðar.

Reykjavíkurráð ungmenna er samráðsvettvangur allra ungmennaráðanna sex í Reykjavík en hvert ungmennaráð tilnefnir sína fulltrúa í Reykjavíkurráðið.

Markmið með starfsemi Reykjavíkurráðs ungmenna og ungmennaráðanna í Reykjavík er m.a. að skapa vettvang og leiðir til þess að gera þeim sem eru yngri en 18 ára kleift að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri og þjálfast í lýðræðislegum vinnubrögðum. Í starfi sínu í vetur og síðastliðin ár hafa Reykjavíkurráðið og ungmennaráðin í borginni fjallað um málefni ungs fólks og tekið þátt í ýmsum verkefnum sem fulltrúar ungs fólks í Reykjavík.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt