Sumarstarfið enn í fullum gangi og undirbúingur fyrir haustið hafinn!
Sumarstarfið í frístundaheimilum Tjarnarinnar og félagsmiðstöðinni Hofinu eru enn í fullum gangi þar til grunnskólarnir hefja göngu sína.
Undirbúningur fyrir haustið er hafinn og við skiptum yfir í þann gír 22.ágúst en þá hefjast skólar í Reykjavík.
Forstöðumenn frístundaheimila senda út pósta til foreldra varðandi inntöku barna í frístundaheimilin í dag og á morgun. Börn í 1. bekk eru í forgang með pláss, þar á eftir 2. bekkur og koll af kolli. Enn á eftir að manna þó nokkrar stöður en reynsla sýnir að það gerist oft hratt þegar að komið er fram í september og starfsmenn sem eru í skóla hafa fengið stundatöflur sínar afhentar.
Nýlegar færslur