Söngkeppni Tjarnarinnar!
Þegar tónlistarfólk á Íslandi er spurt hvar það hefur tekið sín fyrstu skref uppi á sviði er oft á tíðum svarið hið sama. Unglingar sem vilja verða stórstjörnur, hvert leita þau? Hvert geta unglingar leitað ef þau hafa ort ástarlag um bekkjarsystur sína? Þetta eru vandamál sem að félagsmiðstöðvar Tjarnarinnar geta leyst og hafa leyst í mörg ár.
Tónlistarfólk sem fær þessa spurningu rifjar upp sveittar hendur, úfið hár nýkomið úr strýpum, bólur, mútur og allt það sem fylgir kynþroskaskeiðinu. En þegar flestir stíga sín fyrstu skref á stóra sviðinu er það einmitt oftast á vegum félagsmiðstöðvanna sem það sótti sem unglingar.
Næstkomandi föstudag þann 25. Janúar mun starfsfólk félagsmiðstöðva Tjarnainnar standa fyrir SÖNGVAKEPPNI TJARNARINNAR! Keppnin verður haldin í Hagaskóla og fara skráningar fram í félagsmiðstöðvum Tjarnarinnar. Keppendur koma frá fimm mismunandi félagsmiðstöðvum Tjarnarinnar og er þetta kjörið tækifæri fyrir lítinn söngfugl til þess að taka sín fyrstu skref á tónlistarferli sínum. Einnig er þetta frábært tækifæri til þess að kynnast krökkum frá öðrum félagsmiðstöðvum.
Að sjálfsögðu er sigur í Söngvakeppni Tjarnarinnar mikill heiður en haltu á ketti vegna þess að Söngvakeppni Tjarnarinnar er einnig undankeppni fyrir SÖNGVAKEPPNI SAMFÉS!
Tvö bestu lögin munu komast áfram og fá söngfuglarnir tækifæri til þess að koma fram og syngja á Söngvakeppni Samfés þar sem krakkar úr öllum félagsmiðstöðvum landsins munu koma og horfa á, njóta og sprella í góðum fílíngi.
Dómarar söngvakeppninnar verða:
Bríet
Unnsteinn Manúel
Sturla Atlas
Þetta verður hrikaleg stemming þannig ekki láta þig vanta!