Reykjavíkurráð ungmenna fundar með borgarstjórn

 í flokknum: Birta á forsíðu, Félagsmiðstöðvar (10-16 ára)

Þriðjudaginn 26. mars fundar Reykjavíkurráð ungmenna með borgarstjórn á opnum fundi í borgarstjórnarsal Ráðhússins. Til umfjöllunar eru tillögur frá unggmennum í Reykjavík um málefni sem á þeim brenna og þeim finnst að betur megi fara í borginni. Fundurinn hefst kl. 15. Streymt verður frá fundinum á vefslóðinni http://reykjavik.is/fundirborgarstjornar/borgarstjorn-i-beinni.

 Fundur Reykjavíkurráðs ungmenna og borgarstjórnar er orðinn að árvissum viðburði og er þessi fundur sá átjándi í röðinni. Að þessu sinni liggja átta tillögur fyrir fundinum og snúa þær m.a. að því að gerð verði úttekt á umhverfi og staðsetningu á grenndarstöðvum í Reykjavík, samráð við börn og ungmenni verði tryggð í öllum málefnum sem varðar þau, aukinni viðveru hjúkrunarfræðinga á skólatíma og táknmálskennslu í grunnskólum.

Fulltrúar í Reykjavíkurráði ungmenna hafa haft í nógu að snúast í vetur. Ráðið hittist vikulega og skipulagði að auki starfsdag fyrir unglinga í öllum ungmennaráðum Reykjavíkur. Þá flutti fulltrúi ráðsins erindi á opnum fundi skóla- og frístundaráðs um nýja menntastefnu Reykjavíkurborgar, ráðið fundaði með fulltrúa Strætó bs. og sótti um styrk til að halda ráðstefnu um starf ungmennaráða næsta haust. Ráðið á einnig fulltrúa í skóla- og frístundaráði, í stjórn Barnamenningarhátíðar og í stjórn 17. júní hátíðarhaldanna í Reykjavík.

Markmið með starfsemi Reykjavíkurráðs ungmenna er m.a. að skapa vettvang og leiðir til þess að gera þeim sem eru yngri en 18 ára kleift að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri og þjálfast í lýðræðislegum vinnubrögðum. Í starfi sínu í vetur og síðastliðin ár hefur Reykjavíkurráðið fjallað um málefni ungs fólks og tekið þátt í ýmsum verkefnum sem fulltrúar ungs fólks í Reykjavík. Reykjavíkurráð ungmenna er jafnframt samráðsvettvangur allra ungmennaráða sem starfa í borginni.

Meðfylgjandi er yfirlit yfir tillögur Reykjavíkurráðs ungmenna sem lagðar verða fyrir borgarstjórn.

Allar nánari upplýsingar veitir Hulda Valdís Valdimarsdóttir verkefnastjóri á fagskrifstofu frístundamála og starfsmaður Reykjavíkurráðs ungmenna, í síma 695-5021

Tillögur/Greinargerðir í PDF formi hér

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt