Rafrænn Gleðibanki
Vikan í rafrænum Gleðibanka er stutt að þessu sinni þar sem páskar nálgast óðfluga. Við hefjum leika í kvöld á páskabingói klukkan 20:00 á instagram þar sem aðalvinningur verður gjafabréf sem inniheldur bragðaref fyrir tvo.
Á morgun, þriðjudag verður keppni á milli starfsmanna í hinum ýmsu uppákomum og hefst það klukkan 16:00 á instagram. Á miðvikudag munum við síðan fara í leikinn : Myndiru fyrir pening ?
Daglegar áskoranir verða á sínum stað sem og Fróðmunda en Fróðmunda mælir með allskonar fróðlegum instagram síðum sem vert er að fylgja.
Rafrænn Gleðibanki fer síðan í páskafrí og mætir aftur þriðjudaginn 14.apríl.
Bestu kveðjur,
Starfsfólk Gleðibankans
Nýlegar færslur