Öskudagsball 105 fyrir 5.-7.bekk

 í flokknum: 105

Nú styttist óðum í Öskudaginn með tilheyrandi skemmtilegheit. Við í 105 höfum ákveðið í samstarfi við nemendaráð Háteigsskóla að fagna Öskudeginum með sérstöku Öskudagsballi fyrir 5.-7.bekk. Ballið fer fram miðvikudaginn 6.mars frá klukkan 16:30 – 18:30. Það kostar 300 krónur inn og þá verður einnig sjoppa á staðnum. Það verður mikið fjör en meðal annars verða veitt verðlaun fyrir flottasta búninginn og þá verður kötturinn sleginn úr tunnunni. Við erum rosalega spennt fyrir því að sjá sem flesta.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt