Forsíða / Nefndir/ráð/klúbbar í 105

Nemendafélagið

Í 105 er starfandi nemendafélag sem er sameiginlegt með Háteigsskóla. Stjórn nemendafélagsins samanstendur af 6 eldklárum og sniðugum krökkum úr 8. 9. og 10.bekk. Nemendaráðið sér um að allt gangi vel í félagslífi skólans, getur haft áhrif á bætta hagi og líðan nemenda í skólanum auk þess að undirbúa dagskrá og viðburði í 105.

Ásamt stjórninni starfa nefndir sem sjá um mismunandi þætti félagslífsins:  
Skemmtinefnd: Er aðaltengiliður nemendaráðsins við 105 og undirbýr böll og aðra stóra viðburði.

Tónlistarnefnd: Sér um tónlistina á viðburðum og stundum í glerskálanum í hádeginu.

Auglýsinganefnd: Skapandi nefnd sem sér um að auglýsa og skreyta fyrir allskyns viðburði.

Íþróttanefnd: Sér um íþróttaviðburði á vegum skólans og félagsmiðstöðvarinnar.

Árshátíðarnefnd: Skipuleggur og undirbýr árshátíð unglingastigsins sem fer fram í kringum páska ár hvert.

Fjölmiðla- og ritnefnd: Fjallar um viðburði á facebooksíðu skólans, setur inn myndir og auglýsingar og hefur að hluta umsjón með gerð árbókar fyrir útskriftarhópinn.

Skíðaferðarhópurinn: Unglingarnir í 10.bekk stefna á að fara í skíðaferð á hverju ári og stofna sérstakan hóp í kringum það þegar líður á haustönn.

Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt