Landsmót Samfés 2019

 í flokknum: 105

Helgina 4.-6.október fór fram Landsmót Samfés í Mosfellsbæ, en þar komu saman unglingar frá öllu landinu. Unglingarnir mættu í Varmárskóla seinni partinn á föstudeginum þar sem að þau komu sér fyrir og gerðu sig klár fyrir setningarathöfnina en henni var stýrt af Haraldi Sveinssyni, bæjarstjóra Mosfellsbæjar. Eftir setningarathöfnina var gengið til kosninga en á Landsmóti Samfés gefst unglingunum kostur á að bjóða sig fram í Ungmennaráð Samfés. Um kvöldið var svo ball í Hlégarði þar sem að úrslit kosninganna voru tilkynnt og var Ingvar Steinn Ingólfsson einn af fulltrúum 105 kosin í ungmennráð Samfés sem aðalmaður til tveggja ára. Laugardagurinn fór mest megnis í smiðjur sem að unglingarnir höfðu valið sér en þar var bæði boðið uppá allskyns fræðslur sem og einhverskonar afþreyingu. Eftir vel heppnaðan smiðjudag var deginum lokað með frábæru sundlaugarpartýi í Lágafellslaug. Helginni lauk svo með stóru ungmennaþingi sem að Ungmennaráð Samfés hafði undirbúið. Þar fá unglingarnir tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri sem varða mál og réttindi ungmenna. Sérstakur heiðursgestur þingsins var Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, en hann setti þingið í ár. Helgin var að öllu leyti stórkostleg og fóru unglingarnir heim með bros á vör.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt