Kassabílarallý 2017

 í flokknum: Birta á forsíðu, Frostheimar

 

Þá er komið að því! Í dag flykkjast Frostheimabúar á Klambratún þar sem hið árlega kassabílarallý fer fram. Þar sem frístundaheimili Tjarnarinnar eru sjö talsins var ákveðið að hafa tvö rallý í ár, 3. og 4.bekkingar keppa því í sínu eigin rallýi á Klambratúni og 2.bekkingar halda sitt rallý að viku liðinni.

Frostheimabúar keppa í torfærubraut á Klambratúni við krakka úr Draumalandi, Halastjörnunni og Eldflauginni. Eftir rallýið er svo verðlaunaafhending og skemmtiatriði.

Litur Frostheima er rauður og við hvetjum alla til að mæta í einhverju rauðu í dag og hafa gaman með okkur á Klambratúni!

 

 

 

 

 

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt