Hækkun á gjaldskrá frístundaheimila og sértækum félagsmiðstöðvum frá 1. jan
Þjónusta |
Mánaðaverð |
Síðdegishressing |
Samtals |
Vistun 5 daga | 13.413 | 3.872 | 17.285 |
Vistun 4 daga | 10.937 | 3.101 | 14.038 |
Vistun 3 daga | 8.442 | 2.321 | 10.763 |
Vistun 2 daga | 5.956 | 1.561 | 7.517 |
Vistun 1 daga | 3.461 | 791 | 4.252 |
Lengd viðvera | 2.013 |
Ef tvö systkini eða fleiri eru í vistun í frístundastarfi borgarinnar (yfir vetrartímann) er veittur 75% afsláttur vegna annars barns en 100% vegna þriðja og fjórða barns af frístundagjaldi, skilyrði er að systkinin hafi sama lögheimili og fjölskyldunúmer í þjóðskrá. Foreldrar greiða fullt fæðisgjald fyrir öll börnin.
Þá er veittur systkinaafsláttur milli dagforeldra, leikskóla og frístundaheimila/sértæks félagsmiðstöðvastarfs þannig að 50% afsláttur er af gjöldum á frístundaheimili/sértæku félagsmiðstöðvastarfi ef barnið á systkini í leikskóla eða hjá dagforeldri. Ekki er veittur afsláttur af gjaldi fyrir síðdegishressingu.
Ef þjónusta er nýtt kl. 8.00-13.40 á foreldradögum og starfsdögum skóla eða í jóla- og páskafríum þarf að greiða fyrir það kr. 2.013 á dag og er þá talað um lengda viðveru. Á ofangreindum dögum geta börnin eftir sem áður dvalið á frístundaheimilunum/sértæka félagsmiðstöðvastarfinu frá kl. 13.40-17.00. Óskað er eftir skráningu á þessa daga. Einnig er hægt að skrá þau börn eftir hádegi sem ekki eru skráð í vistun þann vikudag og greitt sérstaklega fyrir. Skráning á langa daga er bindandi og ekki er veittur systkinaafsláttur af viðbótarvistun þessa daga.
Gjaldskrá 2018 fyrir sumarstarf frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva
Þjónusta |
Vikuverð |
Viðbótarstund
|
5 dagar | 8.905 | 2.599 |
Sendur er einn greiðsluseðill fyrir hvern mánuð í sumarfrístund. Veittur er 20% systkinaafsláttur af dvalargjaldi annars barnsins skráðu á sama lögheimili/fjölskyldunúmer. Ekki er veittur systkinaafsláttur af gjaldi vegna viðbótarstundar.
Vinsamlega athugið að ef hætta á við þátttöku í námskeiði þarf að tilkynna það skriflega til viðkomandi frístundamiðstöðvar að minnsta kosti viku áður en námskeið/smiðja hefst (t.d. fyrir miðnætti á sunnudegi þegar námskeið/smiðja hefst á mánudegi viku seinna). Ella verður námskeiðsgjald innheimt að fullu.
Gjald fyrir sumarfrístund er innheimt eftir á. Gjalddagi er fyrsti dagur næsta mánaðar. Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga. Hafi gjaldið ekki verið greitt á eindaga leggjast á dráttarvextir og vanskilakostnaður. Hafi ekki verið greitt innan 50 daga frá gjalddaga er krafan send í milliinnheimtu hjá Momentum. Ekki er hægt að nota frístundakort til að niðurgreiða sumarstarf.