Frostheima Hreysti og vellíðunar vikuna
Frístundaheimili Tjarnarinnar eru heilsueflandi frístundaheimili og þessa vikuna er sameiginleg Hreysti og vellíðunarvika hjá frístundaheimilum vesturbæjar, miðborgar og hlíða. Hreysti og vellíðun mun vera liður á hverjum degi hjá okkur þessa vikuna sem og aðrar vikur. Við tengjum hreysti og vellíðun við næringu, andlega líðan, útivist, hreyfingu og lífstíl. Starfsfólk Frostheim mun bjóða upp á ýmsa fræðslu og leiki í vikunni í tengslum við þessi málefni.
Nýlegar færslur