Fjör fyrstu dagana í Frostheimum
Þá er vetrarstarfið komið af stað hjá okkur í Frostheimum og að vanda er mikið líf og fjör á hverjum degi.
Margir eldri Frostheimabúar eru mættir aftur til leiks frá því á síðasta skólaári og þeir eru duglegir við að leiðbeina og sýna þeim yngri hvernig allt saman virkar hér hjá okkur í Frostheimum 🙂
Við höfum boðið upp á fjölbreytt val þessa fyrstu daga og má meðal annars nefna bakstur í Eldheimum, skartgripagerð í Loftheimum og danskennslu í Íþróttaheimi.
Við höfum því miður ekki enn náð að fullmanna hjá okkur fyrir veturinn og því eru ennþá einhver börn á biðlista, en við vonum að allir sem hafa sótt um komist að sem fyrst.
Nýlegar færslur