Fjölbreytt sumarstarf á frístundaheimilum Tjarnarinnar
Börnin á frístundaheimilum Tjarnarinnar hafa sést út um borg og bý þessa daga. Börnin í Halstjörnunni, Draumalandi, Skýjaborgum og Undralandi hafa farið í sveitaferðir og fengu meira að segja að njóta sólardags!
Á Álfagarðinum í Hafnarfirði fengu börn frá Halastjörnunni og Selinu að hitta álfa og leika í þessum fallegum garði. Að sjálfsögu eru vikulegar sundferðir alltaf vinsælar á öllum frístundaheimilum og börnin koma heim þreytt en glöð á þeim dögum. Börnin á Frostheimum eru að læra um umhverfið og náttúrna og þau sátu fræðslu um umhverfið í Sorpu. Börnin í Eldflauginni fóru í kexversmiðjuna Frón og sáu hvernig kex eru búin til og jú smökkuðu!
Nýlegar færslur