Félagsmiðstöðvadagurinn 13. nóvember í 105
Miðvikudaginn 13.nóvember verður Félagsmiðstöðvadagurinn haldinn hátíðlegur í 105. Þar verður fjölbreytt dagskrá frá 18-21 og frábært tækifæri fyrir fjölskyldu og vini til að kynnast félagsmiðstöðvarstarfinu sem að krakkarnir sækja. Á dagskrá verður meðal annars hinn geysivinsæli leikur Hjartsláttur, Vandræðavöfflur og Nintendo Switch mót. Þá er einnig í boði að koma og skoða aðstöðuna og spjalla við starfsfólk 105. Boðið verður uppá köku, kleinur, kaffi og djús fyrir gesti og gangandi. Hlökkum til að sjá sem flesta.
Nýlegar færslur