Félagsmiðstöðvadagurinn í 105
Komdu í heimsókn!
Miðvikudaginn 1. nóvember er öllum velkomið að koma í heimsókn í félagsmiðstöðvarnar og kíkja á starfið okkar út um allt land. Félagsmiðstöðvardagurinn í 105 verður hátíðlegri en venjulega þar sem við eigum 10 ára afmæli í ár. Þetta er frábært tækifæri fyrir foreldra og forráðamenn til að kíkja á starfið okkar, hitta starfsmenn og jafnvel kíkja í borðtennis, playstation, grípa í spil og taka þátt í því sem börn og unglingar gera í félagsmiðstöðinni. Boðið verður upp á veitingar og skemmtilega dagskrá sem allir geta tekið þátt í!
Allir hjartanlega velkomnir!
Nýlegar færslur