Auglýst eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs

 í flokknum: 100og1, 105, Birta á forsíðu, Draumaland, Eldflaugin, Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Frístundaheimili (6-9ára), Frostheimar, Frosti, Gleðibankinn, Halastjarnan, Hofið, Selið, Skýjaborgir, Undraland

Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs vegna leikskóla- og frístundastarfs í Reykjavík;

  • Viltu vekja athygli á gróskumiklu leikskólastarfi og/eða frístundastarfi á vegum Reykjavíkurborgar?
  • Veistu af metnaðarfullu þróunarverkefni, skemmtilegum tilraunum, áhugaverðum samstarfsverkefnum leikskóla eða frístundamiðstöðva?
  • Viltu veita starfsfólki í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkur viðurkenningu og hvatningu?

Allir geta tilnefnt til verðlaunanna; foreldrar, ömmur og afar, starfsfólk SFS, aðrir borgarstarfsmenn, leikskólar, grunnskólar, frístundamiðstöðvar, aðrar stofnanir og samtök.
Við val á verðlaunahöfum verður haft til hliðsjónar að verkefnið sé öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka, svo og að fjölbreytt verkefni fái viðurkenningu.

Þrjú verkefni sem skara fram úr verða verðlaunuð og fær starfsstaður viðurkenningarskjali og verðlaunagrip til eignar.
Skilafrestur fyrir tilnefningar er til 24. mars 2017. Tilnefningar sendist á sfs@reykjavik.is. Sjá eyðublað í viðhengi og í frétt á Reykjavíkurvefnum:
http://reykjavik.is/frettir/auglyst-eftir-tilnefningum-til-hvatningarverdlauna-vegna-leikskola-og-fristundastarfs

Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir framsækið frístundastarf verða afhent á Höfuð í bleyti, uppskeruhátíð starfsfólks frístundamiðstöðva 12. maí nk.

Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir framsækið leikskólastarf verða afhent á Stóra leikskóladeginum, uppskeruhátíð leikskólanna 19. maí nk.

Hvatningarverðlaun vegna grunnskólastarfs voru afhent á árlegri öskudagsráðstefnu grunnskólakennara 1. mars.
Sjá frétt: http://reykjavik.is/frettir/sandleikur-fuglarannsoknir-og-augnstyring-i-nami-fa-hvatningarverdlaun

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt